Í áfanganum eru nemendur látnir vinna með hugtök og þekkingu úr afl, bylgju og varmafræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við nám í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.
EÐLI2GÁ05 og STÆR3HV05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
gasjöfnunni og kjörgasi
sveiflum, bylgjum og hljóði sérstaklega og ljósgeislafræði
viðlagningarlögmálinu, endurvarpslögmálinu og lögmáli Snells
helstu hugtökum sem notuð eru til að lýsa hringhreyfingu, hreyfingu í tveimur víddum skriðþunga og vökvum
lögmálinu um varðveislu skriðþunga og atlagslögmálinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum
beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi
leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða frá gefnum forsendum
setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
vinna með ýmis mælitæki, framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
nota námsefni og gögn á markvissan hátt
yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið
meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar