Áfanginn skal veita grunnþekkingu á verkfærum leikarans til greiningar á leikritum, senum og persónusköpun. Áfanginn skal þjálfa nemendur í verklagi leikhússins, leikni í aga og í að beita sköpunargleðinni til jafns við formuppbyggingu sena og persóna.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að nýta sér jákvæðni í samvinnu við aðra
hinum gefnu forsendum í leiklist
verkfærum leikarans (rödd, líkama, tilfinningum og ímyndunarafli)
uppbyggingu sena aðstæðna og kringumstæðna
uppbyggingu leikrita
uppbyggingu persóna
leikrými og mismunandi nýtingu þess
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta rödd, líkama og tilfinningar til að túlkunnar á sviði
vinna í skapandi orku
vinna uppbyggilega með öðrum
beita virkri hlustun á sviði og utan þess
koma hugmyndum sínum á framfæri á skapandi hátt
beita sjálfstæðum vinnubrögðum og sjálfsaga í leiklistarvinnu
nýta leikrými á mismunandi hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina leikverk
rökræða leikverk, senur og persónur í leikverkum
skapa trúverðugar persónur og setja sig í spor þeirra
beita rödd, líkama, tilfinningum og ímyndunarafli í skapandi vinnu
beita hlustun og orkustigi í samvinnu og sviðsvinnu
beita sjálfsaga og þjálfa sig í sjálfstæðum vinnubrögðum