Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1686923785.03

    Senuvinna
    LEIK2SV05
    22
    leiklist
    senuvinna
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Nemendur læra að vinna leikin atriði á sviði frá fyrsta samlestri að uppsetningu. Nemendur fá innsýn inn í aðferðir Stanislavskis og fleiri áhrifamanna í leiklistarsögunni sem lögðu áherslu á vinnu leikarans. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, samvinnu og að nemendur skili þeirri heimavinnu sem sett er fyrir hverju sinni. Áfanganum lýkur með opnum tíma þar sem atriðin eru sýnd fyrir framan áhorfendur.
    LEIK2BS05 LEIK2RT05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vinnu leikarans frá fyrsta samlestri að sýningu
    • vinnu við persónusköpun út frá handriti
    • gildi góðs undirbúnings í persónusköpun
    • mikilvægi heimavinnu leikarans
    • aðferðum ólíkra fræðimanna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna sjálfstætt að persónusköpun
    • beita ólíkri tækni til að glæða leikpersónu lífi
    • vinna með öðrum að uppsetningu leikatriðis
    • nota nærsamfélag sitt og fjölmiðla til að sækja sér innblástur og upplýsingar
    • greina leikverk og einstakar leiksenur
    • nýta sér hugmyndabók við vinnu leikarans
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta leikið persónu úr leikverki sem byggð er á listrænum ákvörðunum hans í samtali við leiðbeinanda
    • tengt saman alla þá ólíku þætti sem þarf til að leikpersóna í leikverki verði trúverðug
    • beita spuna og öðrum leiktæknilegum aðferðum við sköpun leikpersónu
    • sýna sjálfstæð, öguð og einbeitt vinnubrögð
    • vinna sjálfstætt og í hópi við persónusköpun