Lögð er áhersla á að kynna nemendur fyrir leiklist út frá ólíkum sjónarhornum. Sérstök áhersla er lögð á sjónarhorn leikstjórans. Nemendur fá innsýn í hugmyndir og aðferðir frægra kennismiða í vestrænni leiklist. Nemendur nýta þessar hugmyndir og aðferðir, sem og aðra tækni sem þeir hafa lært á skólagöngu sinni, til að leikstýra samnemendum sínum í stuttum senum. Einnig kynnast nemendur því fjölbreytta starfi sem fram fer innan veggja leikhússins.
LEIK2SV05 LEIK3SK05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hlutverki leikstjórans í uppsetningu sviðslistaverks
samspili mismunandi sjónarhorna þeirra listamanna sem koma að uppsetningunni
hvernig hægt er að leikstýra handriti
hvernig hægt sé að sameina ólík listform í eigin sviðslistaverki
því víðtæka starfi sem fram fer við uppsetningu sviðslistaverka
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna stutta leiksenu bæði sem leikstjóri og leikari út frá ólíkum kenningum og aðferðafræði
nýta ólík listform við uppsetningu á sviðslistaverki
beita tungumáli leikhússins
taka virkan þátt í leikhúsumræðu
geta rökstutt og miðlað listrænum ákvörðunum sínum í ræðu og riti
greina senur og leiktexta til að geta tekið sjálfstæðar og listrænar ákvarðanir sem þjóna verkinu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilgreina uppsetningu leikverks út frá sjónarhorni leikstjórans
geta tekið virkan þátt í hugmyndavinnu við uppsetningu sviðslistaverks sjálfstætt eða í hópi
gera sér grein fyrir þeim möguleikum sem leikhúsformið býður upp á
koma sinni persónulegu rödd að í sjálfstæðu sviðslistaverki
koma hugmyndum sínum á framfæri við samstarfsaðila á skýran og skilmerkilegan hátt
setja eigin hugmyndir og vinnu í samhengi við þær kenningar og aðferðir sem þau hafa þegar tileinkað sér í námi sínu
taka þátt í samræðum á faglegum grundvelli um þau ólíku listform sem liggja að baki sviðslistaverki