Í áfanganum eru kenndar aðferðir í söngtúlkun til flutnings á leiksviði. Nemendur læra að vinna söngtexta til flutnings og farið er í grunnþætti raddbeitingar og söngtúlkunar. Unnið er með ólík sönglög frá ýmsum tímum. Einnig fá nemendur kennslu í raddheilbrigði. Nemendur vinna hver með eitt lag, ásamt hóplögum, sem öll verða metin í lok annar.
LEIK2BS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig unnið er með söngröddina og undirstöður í söngtækni
hvernig vinna skal með söngtexta til túlkunar á leiksviði
þeim ólíku leiðum sem hægt er að fara við að túlka og tjá söngtexta á sviði
samvinnu út frá leik, söng og dansi
hvernig lag samtvinnast söguþræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hita upp rödd og líkama til að undirbúa söngflutning
greina lag til túlkunar og flutnings
beita röddinni á áhrifaríkan, dýnamískan og blæbrigðaríkan hátt bæði í söng og leik
nýta söngtækni í flutningi sönglags á leiksviði
tengja saman rödd og tónheyrn
skrá hjá sér hugleiðingar um vinnu með rödd
nýta sér tækniæfingar til að vinna með söng
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
flytja lag á áhrifaríkan og blæbrigðaríkan hátt á leiksviði
nýta þá raddtækni sem hann hafa lært til flutnings á sönglagi/texta
geta tengt saman leikinn texta og sönglag
segja frá og skrifa um ólíkar leiðir til að túlka og tjá texta
geta unnið sönglög bæði sem einstaklingur og í hóp