Markmið áfangans er að nemandinn öðlist skilning á byggingu og starfsemi mannslíkamans. Farið verður yfir helstu hugtök líffærafræðinnar, starfsemi frumna auk helstu líffærakerfa, s.s. hringrásarkerfið, taugakerfið og stoðkerfið. Megináhersla er lögð á stoðkerfið og þá sérstaklega bein, liði og vöðva í fótum. Nemendur læra heiti beina og vöðva út frá enskri nafngiftafræði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
starfsemi þeirra líffærakerfa sem farið er yfir og hvernig þau tengjast innbyrðis og viðhalda innri stöðugleika • lífeðlisfræði vöðvasamdráttar • grunnatriðum þreifinga á beinum og vöðvum • staðsetningu helstu beinagrindarvöðva líkamans, ásamt upptökum, festum og virkni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota ensk fræðiheiti við að lýsa afstöðu líffæra og líffærahluta • rekja og útskýra lífeðlisfræðileg ferli • tengja byggingu líffæra- og líffærahluta við starfsemi þeirra • þreifa og nefna helstu vöðva líkamans, • nefna bein, liði, upptök og festur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
finna bein, vöðva og festur með þreifingu • sýna hvernig maður styttir og lengir ákveðna vöðva • greina á milli heilbrigðrar líkamsstarfsemi og frávika frá henni • geta sýnt fram á hvernig lífshættir hafa áhrif á heilbrigði • taka þátt í faglegri umræðu er varðar líffæra- og lífeðlisfræði og meta trúverðugleika þeirra upplýsinga sem færðar eru fram á því sviði