Nemanda eru kynntir möguleikar til starfa í faginu og til frekara náms að því loknu. Farið er í gegnum réttindi iðngreinarinnar, lög um aðbúnað, öryggi og hollustuhætti eru kynnt. Nemanda eru kynntar orsakir vinnuslysa og helstu öryggisvarnir, m.a. í umgengni við áhöld, vélar og efni. Þá er farið í gegnum reglur um vinnuvernd, m.a. um rétta líkamsbeitingu og notkun á viðeigandi hlífðarfatnaði. Nemendur þjálfast í að kynna verk sín, tengja vinnuferli við verklýsingar og verkgreiningu í skósmíðaiðn. Lögð er áhersla á að kynna ýmsar vélar og verkfæri sem notuð eru á skósmíðaverkstæðum. Nemandinn fær innsýn í mikilvægi persónulegrar og fagmannlegrar þjónustu við viðskiptavini. Tölvutækni nýtt við upplýsinga- og hráefnisöflun.
Inntökuskilyrði á námsbrautina
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
möguleikum sínum og sóknarfærum að námi loknu • helstu tegundum iðnaðarvéla fyrir skósmíðaiðn • virkni, notkun og meðferð helstu véla og verkfæra í greininni • réttri líkamsbeitingu í vinnuumhverfinu • öryggis- og varúðarráðstöfunum varðandi vinnu sína • fagorðum skósmíðaiðnar á ensku • almennum ákvæðum um réttindi og skyldur fagmanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• kynna sig og sín störf af öryggi • útbúa verkgreiningu skósmíðaiðnar • nota rétta líkamsbeitingu í vinnuumhverfinu • beita öryggis- og varúðarráðstöfunum í vinnu sinni • beita helstu fagorðum skósmíðaiðnar á ensku • eiga samskipti við viðskiptavini • eiga samskipti við efnisbirgja og seljendur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta vélar og verkfæri greinarinnar við vinnu sína • meta mikilvægi góðs undirbúnings fyrir mismunandi verkefni • leiðbeina af fagkunnáttu og ábyrgð • sýna þjónustulund þegar hann sinnir viðskiptavinum af lipurð og háttvísi • umgangast óvistvæn efni á viðeigandi hátt • hagnýta tölvutækni við upplýsinga- og hráefnisöflun • afla hráefnis og vöru frá söluaðilum og umboðsaðilum.