Nemandi þjálfast í að vinna sjálfstætt að almennum og sérhæfðum verkefnum við viðgerðir á skófatnaði ásamt því að kynnast nýsmíði. Farið verður í almennar skóviðgerðir, endurnýjun slitflata ísetningu bóta, hælplötur, sólun, ísetningu rennilása, kósa, króka o.fl. Miðað er að því að nemandi geti gert við skó, endurnýjað slitna fleti og annast frágang á skófatnaði
EFSK2SK14BH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• mikilvægi góðrar þjónustu • vinnsluaðferðum í skósmiði • skipulagningu verkferla • mikilvægi góðra samskipta við birgja og viðskiptavini • mikilvægi þess að hámarka efnisnýtingu • því að meta viðgerðarhæfi hverrar vöru fyrir sig og verðmeta hana (skóviðgerðir) • mikilvægi góðrar tímasetningar og markmiðasetningu við viðgerðir og nýsmíði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• Sóla og hæla vel gengna karl og kvennskó • Skipta um hæla á pinnahælaskóm • Setja bót á yfirleður og ganga frá • Setja hælfóður i háa og lága skó • skipta um fóðursóla • setja upp hæl á karlmannskóm • hand- og randsauma • pinna inn, handsauma yfirleður og rönd á tilsettum tíma • heilsóla og genga frá sérsmíðuðu skópari • setja ilfjöður í skó með botnstykki • sauma rennilása í skó ásamt því að setja kósa, króka, smellur og franska lása (hook og loop) • lita lága skó
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
• velja réttar aðferðir fyrir hvern verkþátt skósmíðaiðnar • þjónusta viðskiptavini af lipurð, háttvísi og kunnáttu • pinna inn yfirleður á leista og ganga frá fullbúnu skópari (skósmíði) • hámarka nýtingu efna í skósmíði • vinna sjálfstætt að almennum og sérhæfðum verkefnum við smíðar og viðgerðir á skófatnaði • leiðbeina við val á skóm í samræmi við óskir og tilefni • meta viðgerðir og tíma sem tekur að klára þær • geta ákveðið og leiðbeint viðskiptavinum um efnisval við viðgerð á skóm • geta aðstoðað viðskiptavin um val á efnum til að smíða skó • kunna skil á ýmsum málsetningum við skógerð og skóstærðir • kunna skil á hinum ýmsu efnum sem notuð eru við skógerð og ákveðið hvað hentar hverju sinni • geta valið þráð og tvinna í viðgerðir og nýsmíði • geta valið nálastærðir og gatadeilingu við saumaskap á skóm • geta stillt saumavél og aðrar vélar við smíði og viðgerðir • kunna að skipta um sandpappír og olíur á vélum notaðar við smíði og viðgerðir