Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1687771167.47

    Starfsþjálfun - ferilbók í skósmíði 2
    STAÞ2SK30(AH)
    98
    Starfsþjálfun
    skósmíði
    Samþykkt af skóla
    2
    30
    BH
    Áfanginn felur í sér starfsþjálfun á námssamningi þar sem nemandi beitir þeirri þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur aflað sér í náminu. Kröfur í starfsþjálfun aukast stig af stigi. Að loknu námi í skóla, starfsþjálfun og fullnægjandi útfylltri ferilbók er neminn tilbúinn í sveinspróf. Á 2. þrepi er tilsögn meistara ætíð tiltæk. Sjálfstæði nemandans eykst síðan eftir því sem á námið líður. Á 2. þrepi þekkir nemandi vel til vinnustaðamenningar og verksviða fagsins. Hann öðlast aukna færni í að beita áhöldum og nota efni sem tilheyra faginu. Hann getur unnið með viðurkenndu verklagi samkvæmt öryggisreglum og fylgt hönnunargögnum með tilsögn. Í lok áfangans hefur hann náð færni til að hefja nám á 3. þrepi starfsþjálfunar.
    STAÞ2SK15AH
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • helstu verksviðum fagsins. • helstu öryggis- og umhverfisatriðum sem snerta fagið. • helstu gæðakröfum sem snerta fagið. • eiginleikum og möguleikum þeirra efna sem hann vinnur með innan fagsins. • áhöldum og tækjum sem tilheyra faginu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • fylgja hönnunargögnum með tilsögn. • vinna í samræmi við gildi og stefnu vinnustaðarins. • vinna með hliðsjón af gæðakröfum og viðurkenndu verklagi. • vinna í samræmi við viðurkenndar öryggisreglur og öryggisbúnað. • beita fjölbreyttum aðferðum til að ná markmiðum í starfi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • beita sjálfstæði í vinnubrögðum. • horfa á verk sitt gagnrýnum augum og bæta verklag með aðstoð meistara. • nota og sinna viðhaldi á áhöldum og tækjum. • beita sér rétt við vinnu. • sýna þjónustulund og góða umgengni og umhirðu á vinnustað.
    Leiðsagnarmat