Í áfanganum öðlast nemendur þekkingu á helstu grunnhugtökum í lita- og formfræði. Tilraunir eru gerðar með tvívíð form, liti, letur og myndbyggingu, þar sem verkefnavinna er tengd umhverfi og annarri vinnu í náminu. Helstu litakerfi kynnt. Unnið er með grátónaskala og litablöndun út frá grunnlitum. Í verkefnavinnu eru andstæðir og hliðstæðir litir, kaldir og heitir litir, ljósir og dökkir litir notaðir. Skoðuð er táknfræðileg merking lita og tilraunir eru gerðar með litasamsetningar og áhrif. Í formfræði er unnið með hlutbundin og óhlutbundin form ásamt hugtökum í tengslum við punkta, línur og fleti. Virkni forma og lita er skoðuð á myndfletinum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökum í lita- og formfræði.
lögmálum myndbyggingar.
hvernig litir og form birtast í umhverfinu.
ólíkum vinnuaðferðum og mikilvægi tilrauna í þróun hugmynda.
táknfræðilegri merkingu lita og forma.
virkni tvívíðra forma.
hlutbundnum og óhlutbundnum formum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
yfirfæra þekkingu sína í lita– og formfræði í fjölbreyttum verkefnum.
vinna á skapandi hátt í tilraunum, hugmyndavinnu og skissugerð.
beita viðeigandi vinnuaðferðum og verkfærum við úrvinnslu verkefna.
skoða og vinna með liti, form og myndbyggingu.
tengja lita- og formfræði við umhverfi sitt.
greina á milli hlutbundinna og óhlutbundinna forma.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna á skapandi hátt með form, liti og myndbyggingu í tilraunum, skissum og útfærslum.
skoða og greina form og liti í umhverfinu.
einfalda og draga ályktanir í vinnu sinni.
sýna ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum.
geta kynnt og fjallað um eigin verkefni og annarra á gagnrýnin hátt.