Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1687785612.6

    Efnisfræði og verktækni skólsmíðaiðnar
    EFSK2SK14(BH)
    1
    Efnisfræði og verktækni skósmíðaiðnar
    skósmíði
    Samþykkt af skóla
    2
    14
    BH
    Nemandi kynnist leiðum til að hámarka nýtingu efna, þekkja áhrif þeirra á umhverfið og fylgir vistvænum aðferðum við meðferð og losun þeirra. Nemandi þjálfast í að vinna eftir teikningum og beita viðeigandi vinnuaðferðum hverju sinni við skóviðgerðir ásamt því að nota áhöld, efni og tæki af öryggi.
    IÐNF1SK8AH
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • • vélum, tækjum og handverkfærum sem tengjast skósmíðaiðn • réttum handtökum í vinnsluaðferðum skósmíðaiðnar • hvernig má hámarka nýtingu efna • umhverfisvænum vinnsluaðferðum og förgun efna • skipulagningu verkferla • öllum helstu efnum sem eru notuð í skó-smíðaiðn og þekkja áhrif þeirra á umhverfið • virkni efna út frá notkunarsviði • ólíkum eiginleikum náttúruefna og textíl sem nýttur til skógerðar • gildi nákvæmra vinnubragða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • • annast umhirðu og hreinsun þeirra handverkfæra sem eru notuð í greininni • beita helstu handverkfærum við vinnu sína • stilla vélar sem tilheyra greininni • velja réttar aðferðir fyrir hvern verkþátt skósmíðaiðnar • vinna við ýmsar gerðir skóviðgerða • vinna með ólíkar límtegundir, meðferð þeirra og förgun • brýna hnífa og viðhalda verkfærum • meðhöndla tvinna og þráð til sauma
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • • skipuleggja verkferla og undirbúa vinnusvæði • gera við skó og endurnýja slitna fleti • vinna eftir teikningum og beita viðeigandi vinnuaðferð hverju sinni • annast frágang á skófatnaði • beita skipulögðum og vönduðum vinnubrögðum • skilja mun á ýmsum sandpappírsgerðum og grófleika • skilja mismunandi leista tegundir og hælahæðir þeirra • þekkja mun á mismunandi grófleika sólaefna og hráefna í skó • gera greinamun á EVA- og PU efni auk annarra gúmmíefna • þekkja ofnæmisviðbrögð við efnisval • geta viðhaldið vélum og tækjum með réttri meðhöndlun og almennri umgengni
    Símat