Byrjunaráfangi í íslensku fyrir nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku. Áfanginn samsvarar A0-A1 í evrópska tungumálarammanum. Ekki er gert ráð fyrir að nemendur kunni einhverja íslensku áður en þeir hefja nám í áfanganum. Áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði íslensku og byggi upp orðafroða sem tengist daglegu lífi þeirra og athöfnum
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnorðaforða og málnotkun sem tengjast daglegu lífi
helstu framburðarreglum og ritunarreglum í íslensku
samskiptavenjur og siði í íslensku samfélagi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig í einföldum setningum og þekkja algeng orð sem tengjast daglegum athöfnum, fjölskyldu og nánasta umhverfi
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
lesa einfalda texta um málefni sem tengjast daglegu lífi
fylgja einföldum fyrirmælum og fara eftir eðlilegum samskiptavenjum
taka þátt í einföldum samræðum
geta skrifað stutta, einfalda texta, s.s. fylla út eyðublöð og skrifa skilaboð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig á einfaldri íslensku um daglegt líf, munnlega og skriflega
fara eftir einföldum fyrirmælum, munnlegum og skriflegum
þekkja venjulegar íslenskar samskiptavenjur og geta farið eftir þeim
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum.