Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1691578238.64

    Heilbrigðisfræði
    HBFR2HE05
    3
    heilbrigðisfræði
    heilbrigðisfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Markmið áfangans er að nemandi öðlist skilning á því hvernig hugtök heilbrigði og sjúkdóma tengjast lífsvenjum okkar ásamt almennum siðum og venjum samfélagsins. Lögð er áhersla á að nemandi átti sig á markmiðum heilbrigðisfræðslu og forvarna. Farið er yfir tengingu trúar, sögu og menningar við heilbrigði samfélaga. Nemandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði í námin.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • markmiðum heilbrigðisfræðslu
    • mikilvægi umhverfisverndar og forvarna
    • starfsemi heilsugæslunnar
    • áhrifum misnotkunar lyfja, áfengis og fíkniefna
    • tengslum heilbrigði við sögu, trú og menningu
    • örverum, smiti og vörnum
    • sögulegri þróun heilbrigðismála
    • aðferðum og aðgerðum sem stuðla að heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa og meta forvarnafræðslu á gagnrýninn hátt
    • geta nýtt sér þá heilbrigðisþjónustu sem í boði er
    • velja heilsusamlegan lífsstíl
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta á gagnrýninn hátt málefni tengd heilsu og heilbrigði
    • greina samspil lífsstíls og heilsu og gera sér grein fyrir eigin lífsstíl og áhættuþáttum honum tengdum
    • lesa með gagnrýnum huga það sem fjölmiðlar segja um heilsu og heilbrigði