Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandi læri um hlutverk þjálfara í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Nemandi öðlast undirstöðuþekkingu í kennslu- og aðferðafræði íþrótta og þjálfun í að bregðast við meiðslum. Fjallað er um mataræði íþróttamanna og áhrif vímuiefna á afkastagetu og árangur. Nemandi fær þjálfun í áætlunargerð. Hluti áfangans fjallar um félagsmálastörf. Nemandinn fær þjálfun í fundarstörfum s.s. fundarstjórn, fundarritun og lærir um helstu hlutverk stjórnarmanna. Nemandi lærir að lesa úr skipuritum og hvernig starfað er eftir þeim. Áfanginn jafngildir þjálfaranámskeiði ÍSÍ 1a, 1b og 1c almenna hluta.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þjálfun barna og unglinga
skipulagi íþróttahreyfingarinnar
grunnatriðum þjálffræðinnar
andlegum og líkamlegum þroska barna
uppbyggingu líkamans
fyrstu viðbrögðum við íþróttameiðslum
fundarsköpum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
búa til tímaseðil og stjórna íþróttaæfingu
skipuleggja íþróttaskóla fyrir yngstu íþróttaiðkendurna
stjórna fundi og flytja ávarp
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
starfa með börnum og unglingum við íþróttaiðkun
geta brugðist rétt við íþróttameiðslum með fyrstu hjálp
gera sér grein fyrir hvaða/hvernig æfingu þarf að gera til að styrkja ákveðna líkamshluta