Áfanginn er bóklegur og byggist að mestu leyti upp á fyrirlestrum, umræðu- og verkefnatímum.
Áhersla er lögð á undirstöðuþekkingu á forvörnum ásamt því að nemendur læri að taka ábyrgð á eigin heilsu. Í áfanganum er m.a. farið yfir mikilvægi næringar, svefns, andlegrar líðan, markmiðasetningu, kynheilbrigði og hvernig er hægt að tileinka sér umhverfisvænan lífsstíl.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi næringar og svefns
áhrifum forvarna
mismunandi aðferðum og gagnsemi markmiðasetninga
almennu heilsulæsi
aðferðum til að halda líkamlegu og andlegu jafnvægi
ábyrgð einstaklinga á eigin heilsu og líðan
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
finna gagnlegar og áreiðanlegar upplýsingar
setja sér markmið með mismunandi hætti
meta sína eigin heilsu
nýta sér gagnlegar aðferðir til að halda líkamlegu og andlegu jafnvægi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja saman næringu, líkamsrækt og forvarnir
framkvæma eigin þjálfáætlun sem miðar að því að efla eigin heilsu
nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri líkamlegri og andlegri heilsu