Áfanginn er hvort tveggja bóklegur og verklegur. Markmiðið er að efla þekkingu á jógafræðum og kenna helstu undirstöðuatriði jóga. Auk þess verður fjallað um lýðheilsufræði og farið í vettvangsheimsóknir. Í lok áfangans á nemandi að geta útskýrt hugmyndafræði jóga og helstu grunnæfingar ásamt því að vera upplýstur um helstu áhrifavalda heilbrigðis, forvarna og heilsueflandi aðgerða. Í lok áfangans eiga nemendur að vera færir um að stjórna, skipuleggja og leiðbeina í jóga. Einnig eiga nemendur að hafa þekkingu á grunnhugtökum lýðheilsufræða.
ÍÞRF2þj05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
jógaiðkun
jógaæfingum
heimspeki jóga
öndun og slökun
áhrifavöldum heilbrigðis
forvörnum
heilsueflandi aðgerðum
heilsulæsi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stunda jóga
gera jógaæfingar
tileinka sér helstu öndunar- og slökunaræfingar
útskýra og leita sér upplýsinga um heilsulæsi
nýta sér forvarnaraðgerðir sem eru byggðar á vísindalegum grunni
upplýsa einstaklinga um mismunandi heilsueflandi aðgerðir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta framkvæmt helstu jógaæfingar
útskýra helstu jógaæfingar
útskýra heimspeki jógaiðkunar
upplýsa einstaklinga og/eða hópa um forvarnir
upplýsa einstaklinga og/eða hópa um heilsueflandi aðgerðir