Í áfanganum kynnast nemendur listum og menningu samtímans á Íslandi og völdum stöðum erlendis. Nemendur skoða ýmsa þætti listalífsins, s.s. myndlist, hönnun, leiklist, ljósmyndun, dans, kvikmyndir og tónlist, hvern í samhengi við annan og við félagslegt og heimspekilegt umhverfi . Farið verður í vettvangsferðir á listviðburði og nemendur skila rökstuddri, faglegri gagnrýni eða umræður verða um viðburðina. Nemendur þjálfast í að vinna sjálfstætt og með öðrum í að afla sér þekkingar af netinu, úr bókum, fjölmiðlum, sýningarferðum o.fl. og vinna fjölbreytt verkefni og kynningar í máli, myndum og hljóði fyrir samnemendur sína. Í áfanganum verður fram haldið þeirri vinnu með texta sem lagður var grunnur að í áfanganum MENN1so05 en hér verður áhersla lögð á texta þar sem fjallað er um menningu samtímans.
MENN2SO05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
menningu samtímans á Íslandi og í öðrum löndum
orðræðu sem notuð er þegar fjallað er um menningu og listir í samtímanum
fjölbreytileika samtímamenningar
samhengi listar, samfélagsgerðar og tíðaranda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna rannsóknarvinnu og koma henni frá sér á fjölbreyttan hátt
beita rökstuddri gagnrýni við umfjöllun um ólíka listviðburði
lesa, skilja og greina texta annarra um menningu og listir
skrifa texta þar sem fjallað er um listviðburði á vitsmunalegan og gagnrýninn hátt og þar sem rými er gefið fyrir tilfinningar og innsæi
taka þátt í samræðum um menningu og listir í samtímanum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa texta um ólíka þætti samtímamenningar
hafa áhrif á og taka þátt í umræðu um menningu samtímans