Í áfanganum verða unnin þrívíð myndverk. Nemendur fá kennslu í þrívíddarformfræði. Unnið verður með ýmis efni s.s. leir, gifs og pappa. Nemendur læra ýmisskonar tækni við mótun og afsteypu. Nemendur læra að nýta sér þrívíddarteikniforrit, þrívíddarprentara og einfalda líkanagerð og laserskera við vinnslu og framsetningu hugmynda sinna. Nemendur vinna markvisst í hugmyndabanka og skrá niður hugmyndir og tilraunir sem sýna vinnuferlið. Nemendur fá þjálfun í að ræða um og gagnrýna verk sín og annarra nemenda. Nemendur fara með kennara og á eigin vegum á sýningar sem tengjast efni áfangans og skila umfjöllun um þær. Íslenskir listamenn sem vinna verk með þeirri tækni sem kennd er í áfanganum verða kynntir.
TEIK1GR05 og LITA1LT05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
eiginleikum mismunandi efna til skúlptúrgerðar
mismunandi aðferðum við skúlptúrgerð
líkanagerð
þrívíddarteikniforriti
starfi íslenskra myndlistarmanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
byggja upp verk í þrívídd
nota mismunandi efni til skúlptúrgerðar
móta, setja saman og taka afsteypu af skúlptúrum
nýta sér þrívíddarforrit og líkanagerð við hugmyndavinnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skapa þrívíð myndverk sem eru áhugaverð og persónuleg
fjalla um hugmyndalegan og verklegan bakgrunn verka sinna
taka þátt í uppbyggilegri og frjórri samræðu um verk sín og annarra