Í byrjun vinna nemendur alls kyns skissur og teikningar með mismunandi aðferðum undir handleiðslu kennara. Nemendur kynna sér verk mismunandi listamanna sem vinna með allar þær tækniaðferðir sem nemendur eru búnir að læra. Þetta gera þeir bæði með heimsóknum til listamanna og með því að skoða verk þeirra í bókum og á netinu. Í kjölfarið ákveður nemandi þema eða hugmynd lokaverkefnis síns. Nemendur gera skriflega verkáætlun með lýsingu á framkvæmd, forsendum fyrir vali á verkefni, og hvaða hugmyndir eru að baki verkinu. Þeir halda dagbók þar sem þeir skrá allt vinnuferlið og hugmyndir sem koma upp á vinnutímanum. Nemendur vinna sjálfstætt en eiga að notfæra sér leiðsögn kennara í öllu ferlinu til að ræða um hugmyndir og útfærslu verksins. Nemendur skipuleggja lokasýningu í samráði við kennara.
Allir aðrir áfangar á myndlistarsviði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig vinna á listaverk alveg frá grunnhugmynd og til lokaútfærslu
hvernig setja á upp samsýningu
hvernig ferilmappa skal líta út
hvernig vinnuferlið er skrásett og útskýrt skilmerkilega
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna fullhugsað listaverk frá hugmynd til fullunnis verks , kynna það og setja á sýningu
setja eigin verk og hugmyndir saman í persónulega ferilmöppu
setja upp myndlistarsýningu ásamt öðrum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tileinka sér sjálfstæð, fagleg og skapandi vinnubrögð sem metið er með verkefnum