Nemendur læra að vinna með stærðartöflur, grunnsnið og sniðútfærslur. Lögð er áhersla á saumtækni með ýmsum gerðum af prufusaumi og læsi á vinnulýsingar í texta og myndum. Farið er sérstaklega í notkun á saumavélum, overlockvélum og straujárni. Unnið er með samspilið á milli tískuteikninga, flatra vinnuteikninga og sniðútfærslna. Kennd er tenging sniða og efna varðandi teygjanleg og föstofin efni. Nemendur læra að mæla efnismagn fyrir flíkur út frá sniðum og notkun á flísilíni, tvinnagerðum og öðru tilleggi varðandi saumaskap og frágang. Saumaðar eru 1-2 flíkur og lögð áhersla á mátun og leiðréttingu sniða. Nemendur tileinka sér skipulagt vinnuferli og vandaðan frágang og læra uppsetningu vinnulýsinga, tískuteikninga og flatra vinnuteikninga.
FATA1SS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu grunnsniða
heiti sniðhluta, þráðréttu og mikilvægi saumamerkinga á sniðum
einföldum og flóknum sniðútfærslum í stöðluðum stærðum
notkun grunnsniða til að útfæra einfaldar flíkur
vinnulýsingum í texta og myndum
flötum vinnuteikningum við vinnslu á sniðum
saumtækni með prufusaumi s.s rennilásum og vösum
samspili efna og útfærslu sniða
aðferðum til að ákvarða efnismagn í flíkur út frá sniðum
vönduðum vinnubrögðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna ýmsar sniðútfærslur út frá grunnsniðum í stöðluðum stærðum í minni hlutföllum
nota heiti sniðhluta markvisst og nota saumamerkingar á sniðum
útfæra og sauma flíkur eftir eigin málum
nýta sér vinnulýsingar í texta og myndum við prufusaum
koma hugmyndum af flíkum á blað
ákvarða samspil efnis og útfærslu sniða
ákvarða efnismagn sem þarf í flík út frá sniðum
vanda vinnubrögð við alla þætti vinnuferlisins
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt einfaldar sniðútfærslur út frá grunnsniðum
sauma einfaldar flíkur eftir eigin sniðútfærslum
vinna eftir vinnulýsingum í máli og í myndum
sjálfstætt ákvarða efnismagn og tillegg sem þarf í flík samkvæmt sniðum og vinnulýsingu
vanda vinnubrögð við alla þætti vinnuferilsins frá hugmynd að tilbúinni flík