Í áfanganum læra nemendur að hanna og sauma fóðraða yfirhöfn. Nemendur skoða yfirhafnir í sögulegu samhengi og fræðast um kosti þess að fóðra flík. Nemendur þroska með sér tilfinningu fyrir formi, litum, notagildi og listrænu yfirbragði. Nemendur þjálfast í hugmyndavinnu, skissuteikningu og tölvunotkun varðandi hugmyndavinnu og upplýsingaöflun. Nemendur skoða mismunandi hráefni fyrir utanyfirflíkur. Nemendur kynnast uppbyggingu grunnsniðs af jakka, viðbótarhreyfivídd og kynnast ýmsum sniðútfærslum og sniðbreytingum út frá því. Þeir kynnast mikilvægi prufuflíka úr lérefti til mátunar og framkvæmd sniðleiðréttinga. Nemendur kynnast sniðagerð og saumi á ýmsum saumtækniatriðum eins og krögum og vösum. Nemendur þjálfast í útreikningi á efnismagni og skipulagi við sníðingu á efni, fóðri og flísilíni. Nemendur þjálfast í skapandi og sjálfstæðum vinnubrögðum við að skilgreina forsendur og skipuleggja vinnuferli. Þjálfun í nákvæmum og vandvirkum vinnubrögðum.
FATA1SS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
yfirhöfnum í sögulegu samhengi
fóðrun flíka
hvaða hráefni henta í utanyfirflíkur
notkun flísilíns í flíkum
sérhæfðri hönnun á utanyfirflíkum
uppbyggingu grunnsniðs af jakka með tilheyrandi viðbótarvídd og mögulegum sniðaútfærslum bæði í minni hlutföllum og fullri stærð
útreikningi á efnismagni
vinnu við útfærslu sniða og saumi á fóðruðum utanyfirflíkum
saumi á saumtækniatriðum eins og krögum og vösum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla upplýsinga fyrir hönnunarvinnu á utanyfirflík
skissa hugmyndir og teikna tískuteikningar og flatar vinnuteikningar
útfæra snið í minni hlutföllum og yfirfæra í fulla stærð og öfugt
framkvæma sniðútfærslur á grunnsniði fyrir jakka og laga það að líkamsvexti
gera snið að fóðraðri flík
sníða og sauma fóður inn í flík
nota flísilín á réttan hátt
reikna út efnismagn fyrir flík
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna utanyfirflík eftir eigin teikningum
nýta tölvu við upplýsingaöflun, tískuteiknun og uppsetningu vinnuskýrslu
útfæra snið bæði í litlum hlutföllum og fullri stærð
laga snið að líkamsvexti
fullgera snið að fóðraðri utanyfirflík
gera saumtækniprufur af vösum og krögum
sauma fóðraða utanyfirflík á skipulagðan hátt og vanda frágang