Megináhersla er lögð á að fylgja eftir þróun í fata- og textílsögu fram til dagsins í dag. Tekin er fyrir íslensk arfleifð og hvernig staðið er að varðveislu og samtímasöfnun á fatnaði og textíl. Þá er tekið fyrir hvernig fatnaður talar til okkar hvað varðar stéttarstöðu, lífsstíl, hóptilfinningu, athafnir og hefðir. Hvenær og hvernig tískan varð að markaðsvöru og hvernig unglingatískan mótaðist. Einnig er lögð áhersla á framleiðslu- og vinnuumhverfi fata- og textílgreinarinnar í fortíð, nútíð og framtíð. Nemendur nýta fjölbreyttar upplýsingaleiðir við verkefnavinnu í tengslum við innihald áfangans s.s. netið, fagbækur og fagblöð ásamt.
Engar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu og útliti fatnaðar og fylgihluta frá ýmsum stíltímabilum
hvernig staðið er að sögu, varðveislu og samtímasöfnun á fatnaði og textíl
þróun íslenskrar fatagerðar og fatahönnunar
sögu og hlutverki textíls í híbýlum
hvernig fatnaður mótar og hefur áhrif á athafnir og hefðir
iðnframleiðslu og sérhæfðari hönnun á fatnaði
hvernig tískuheimurinn starfar
straumum og stefnum í fata- og textílhönnuðum samtímans
helstu fata- og textílhönnuði á 20. og 21. öld og áhrif þeirra á samtímann
viðskipta-, vinnu- og fagumhverfi greinarinnar, fyrirtæki og stofnanir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina strauma og stefnur í fatnaði og textíl
greina sögu og hlutverk textíls í híbýlahönnun og skreytingum í fortíð og nútíð
nýta sér safna- og sýningarumhverfi greinarinnar
greina mismunandi fatastíla og tegundir fatnaðar og hinar óskráðu reglur um textíl
greina muninn á sérsaumuðum fatnaði, hátískuhönnun, sérhæfðri fjöldaframleiðslu og módelhönnun
teikna fatnað og eigin hugmyndir með fyrirmyndum af fatnaði ýmissa stíltímabila
geta nýtt sér ólíka miðla við öflun upplýsinga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta gert samanburð á þróun fatnaðar og textíl hér á landi og erlendis
njóta safna- og sýningarumhverfis greinarinnar
nýta sér sögulegar heimildir um útlit fatnaðar og fylgihluta fyrir nýjar hugmyndir og lausnir með teiknivinnu