Lögð er áhersla á notkun teikniáhalda, lita og pappírs. Kennd eru undirstöðuatriði í litafræði og formteiknun ásamt fríhendisteikningu og skissugerð. Tískugínur eru teiknaðar í mismunandi stærðum. Æfð er áferðarteikning og skyggingar með blýöntum og litum. Kynntar eru fjölbreyttar aðferðir við gerð óhefðbundinna tískuteikninga. Þema- og litaspjöld ásamt tískuteikningum eru unnar jafnt í höndum sem og í tölvum. Hugmynda- og skissuvinna er unnin út frá þema. Nemendur vinna í skissubækur yfir önnina. Verk íslenskra og erlendra tískuteiknara eru skoðuð.
Engar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun teikniáhalda og mismunandi eiginleikum lita og pappírs
aðferðum við teikningu á tískugínum
þemaspjöldum, handgerðum sem og í tölvum
skissuvinnu sem hluta af ferli við hugmyndavinnu
vinnslu tískuteikninga í höndum og í tölvum
aðferðum við að ná fram áferðum og skyggingum í tískuteikningum
óhefðbundnum aðferðum og verkfærum við teikningu
mikilvægi ferilmöppu
mikilvægi stöðugra æfinga til að ná framförum í teikningu
íslenskum og erlendum tískuteiknurum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota ýmis teikniáhöld og liti við gerð tískuteikninga
nota óhefðbundnar aðferðir við teikningu
útbúa þema- og litaspjöld jafnt í höndum og í tölvu
vinna hugmyndavinnu og teikna skissur út frá þema
nota tölvur við uppsetningu og frágang á tískuteikningum
beita aðferðum til að ná fram áferðum og skyggingum í teikningum
setja fram hugmyndir og ganga frá verkefnum í ferilmöppu
skoða og læra af erlendum og íslenskum tískuteiknurum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna með þema- og litaspjöld og vinna úr hugmyndum í skissuformi
setja hugmyndir sínar og teikningar upp á fjölbreyttan hátt í höndum og í tölvum
teikna fjölbreyttar tískuteikningar og nota óhefðbundnar aðferðir til að ná fram stíl