Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1691657114.14

    Rafsegulsfræði
    EÐLI3RA05
    44
    eðlisfræði
    rafsegulsfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum eru nemendur látnir vinna með hugtök og þekkingu úr rafsegulfræði ásamt þyngdarsviði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við nám í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.
    EÐLI2GÁ05 og STÆR3HV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • því hvernig rafhleðsla hlutar á upptök sín í hleðslum öreindanna
    • kraftalögmáli Coulombs
    • sviðshugtakinu og rafsegulbylgjum
    • spennu og rafstöðuorku, tapi á orku í færslu rafmagns
    • helstu hugtökum sem notuð eru í rafsegulfræðinni og SI-einingum þeirra
    • lögmáli Ohms og reglum Kirchhoffs
    • rökrásum, hliðtengingumog raðtengingum
    • spani og spólum
    • verkun nokkurra tækja sem byggja á lögmálum rafsegulfræðinnar
    • lögmáli Faradays, lögmáli Lenz og lögmáli Biot-Savarts
    • þyngdarlögmál Newtons og lögmál Kepplers
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum
    • beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi
    • leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða frá gefnum forsendum
    • beita hægrihandarreglunni
    • setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
    • vinna með ýmis mælitæki, framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.-
    • nota námsefni og gögn á markvissan hátt
    • yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
    • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar