Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1691663926.13

    Inngangur að efnafræði
    EFNA2IE05
    34
    efnafræði
    inngangur að efnafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Kynning á efnafræði, rannsóknaraðferðum, eiginleikum efna og að vinna með tölur.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • meðferð talna, markverðra stafa og eininga í náttúruvísindum
    • uppbyggingu atóma, jóna og sameinda
    • efnatáknum og helstu tegundum efnabreytinga
    • mólhugtakinu og hlutföllum efna í efnajöfnum
    • mólstyrk efna í vatnslausn
    • helstu gerðum efnahvarfa
    • eiginleikum gasa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla tölur og mælistærðir í efnafræði
    • nota lotukerfi og jónatöflu
    • gefa einföldum efnasamböndum nafn
    • setja upp efnajöfnu og stilla hana
    • beita mólhugtakinu og vinna með tengsl þess við hlutföll í efnajöfnum
    • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum
    • nota gasjöfnuna og reikna hlutþrýsting
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • nota lotukerfi, jónatöflur og önnur gögn við lausn verkefna
    • lesa úr efnatáknum og efnajöfnum
    • gera sér grein fyrir samspili efnafræði, stærðfræði og annarra náttúrufræðigreina
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar og gera sér grein fyrir gildi endurtekninga
    • tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar