Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
lífræn efnafræði
Farið í grunnatriði lífrænnar efnafræði, eiginleika lífrænna efna, IUPAC nafngiftakerfið og efnahvörf lífrænna efna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- skautun sameinda
- svigrúmablöndun kolefnis
- hendni sameinda
- reglum IUPAC nafnakerfisins
- grunnflokkun lífrænna efna
- efnahvörfum lífrænna efna
- uppbyggingu og eiginleikum fjöltengja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- ákvarða svigrúmablöndun kolefnis í mismunandi efnasamböndum.
- nota flokkun og nafnakerfi lífrænna efna.
- skrifa og túlka efnahvörf lífrænna efna.
- sýna sjálfstæði við framkvæmd verklegra æfinga og skilning við úrvinnslu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sjá tengsl milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu milli þeirra
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
- leggja mat á áreiðanleika niðurstaðna rannsókna sinna
- tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar