Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1691666914.23

    Jarðfræði Íslands
    JARÐ2JÍ05
    20
    jarðfræði
    jarðfræði íslands
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Farið er í innræn og útræn öfl með sérstakri áherslu á jarðfræði Íslands. Flekarek og heitir reitir, jarðskjálftar og brotalínur, landmótun jökla og vatnsfalla. Farið er í mismunandi gerðir eldvirkni, mismunandi kvikugerðir og storkubergsmyndanir. Eðli og uppruni mismunandi steinda er skýrður þar sem sérstaklega er fjallað um þær steindir sem helst finnast í íslensku storkubergi. Að lokum er farið í helstu undirstöðuatriði kortagerðar.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi berggerðum Íslands
    • helstu steindum í íslensku bergi, bæði frumsteindum og holufyllingum
    • helstu gerðum landmótunar eins og jökulrákum, grettistökum, jökulruðningum og alpalandslagi
    • helstu gerðum eldstöðva og mismunandi eldvirkni þeirra
    • undirstöðuatriðum jarðfræðikortagerðar
    • grundvallaratriðum jarðfræðinnar með áherslu á Ísland
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • geta beitt algengustu hugtökum jarðfræðinnar og skýrt myndun og gerð landsins
    • greina muninn á helstu gerðum eldfjalla
    • greina í sundur helstu gerðir eldfjalla
    • greina mismunandi gerðir vatnsfalla úr frá lögun og gerð þeirra
    • greina í sundur háhita- og lághitasvæði
    • útskýra myndun mismunandi landsvæða af völdum innrænna og útrænna afla
    • gera grein fyrir mismunandi landmótun vatnsfalla og jökla á Íslandi
    • afla sér heimilda um jarðfræðileg viðfangsefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja sjálfstætt mat á jarðfræðilegar upplýsingar
    • hafa skilning á umhverfi sínu og geti beitt lögmálum jarðfræðinnar til að þekkja uppruna landslags á Íslandi
    • ná sér í upplýsingar, sem hann getur lagt vísindalegt mat á og miðlað þeim til annarra