Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1691667713.38

    Lífeðlisfræði
    LÍFF2LE05
    47
    líffræði
    lífeðlisfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Fjallað verður um frumulíffræði, vefjagerðir og nokkur líffærakerfi og líffærakerfi.
    LÍFF1GÁ05 eða 7 eða hærra á grunnskólaprófi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • frumum og starfsemi frumna
    • undirstöðuatriðum í lífeðlisfræði
    • samhæfingu líffærakerfa sem stuðla að innra jafnvægi líkamans
    • byggingu og starfsemi nokkurra líffærakerfa, húð, blóðrása-, vessa-, ónæmis, meltingar- og önundnarkerfi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lýsa starfsemi líffærakerfanna í máli og myndum.
    • átta sig á hvað telst eðlileg líkamsstarfsemi
    • skilja og tengja störf ólíkra líffærakerfa
    • kryfja líffæri
    • skrifa skýrslu
    • vinna úr heimildum á neti
    • koma þekkingu sinni á framfæri
    • greina ólíkar frumur og vefjagerðir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • kryfja innri líffæri og skrifa skýrslu um það
    • útskýra þekkingu sína í máli og myndum
    • leita að áreiðanlegum heimildum á netinu og nýta þær til að leysa verkefni
    • gera einfaldar mælingar á líkamsstarfsemi s.s. mæla blóðþrýsting, hjartsláttartíðni, öndunarmælingar og tengja niðurstöður við fræðin og draga ályktanir af þeim