Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Almenn umhverfisfræði
Almenn umhverfisfræði
Fjallað um stöðu umhverfismála, m.a. loftslagsbreytingar, mengun, nýtingu náttúruauðlinda og náttúruvernd.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtökum umhverfisfræðinnar
- helstu ógn sem steðjar að umhverfinu
- meðhöndlun sorps
- auðlindum jarðar og nýtingu þeirra
- umhverfisvernd
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vera ábyrgur neytandi
- afla sér áreiðanlegra upplýsinga um umhverfismál
- meðhöndla úrgang á ábyrgan hátt
- leggja mat á áhrif mannsins á umhverfið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í umræðu tengdum umhverfismálum
- gera sér grein fyrir áhrifum mannsins á mótun lands og áhrifum hans á lífríki og umhverfið
- taka rökstudda afstöðu til helstu umhverfismála og nýtingu umhverfis og auðlinda
- umgangast náttúruna af ábyrgð