Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1700126217.51

    Jafnvægi og efnahvörf
    EFNA3FE05
    42
    efnafræði
    framhaldsáfangi í efnafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Farið í flóknari hugtök í efnafræði – efnahvörf og jafnvægi, sýrubasahvörf, rafefnafræði og oxunar-afoxunarhvörf.
    EFNA2FE05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hraðafræði efnahvarfa og hvarfhraða
    • tengslum raforku og efnafræði
    • jafnvægi í efnahvörfum
    • efnafræði sýra og basa og jafnvægi hjá daufum sýrum og bösum
    • efnafræði lausna, jafnalausnum, títrunum og leysnimargfeldi
    • sjálfgengni efnahvarfa, Gibbs fríorku og tengslum hennar við jafnvægisfastann
    • oxun og afoxun
    • orku í efnahvörfum, hvarfavarma, óreiðu og fríorku og tengslum þeirra innbyrðis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna hraðalögmál út frá tilraunaniðurstöðu og nota jöfnu Arrheniusar
    • vinna með orkuhugtök og reikna út orkubreytingar í tengslum við efnahvörf
    • vinna með útreikninga tengda sýrum og bösum
    • reikna orkubreytingar í efnahvörfum og tengja saman orkubreytingar og jafnvægisástand
    • vinna með oxun og afoxun efna í tengslum við rafefnafræði.
    • reikna út orku sem hægt er að fá út úr efnahvarfi, út frá íspennu rafhlöðu
    • nota jafnvægisfasta og jafnvægisstyrki til útreikninga og nota reglu Le Chatelier
    • nota afoxunarspennutöflur til að finna út hvort líklegt sé að efnahvarf verði
    • sýna sjálfstæði við framkvæmd verklegra æfinga og skrifa góðar einstaklingsskýrslur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja saman efnisþætti efnafræðinnar við lausn flókinna verkefna
    • leggja mat á áreiðanleika niðurstaðna rannsókna sinna og annarra
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar