Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1706105628.34

    Tölvu og nettækni
    TNTÆ3GA05
    6
    Tölvu- og nettækni
    Tölvu- og nettækni
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga er fjallað um: Forritun á sörgjörvum (Arduino og Picaxe). Einnig er fjallað um forritun Raspberry Pi tölvunnar. Forritunarmálin C++ fyrir Arduino og Python fyrir Raspberry Pi. Hvernig stýrivélar og örgjörvar taka við stafrænum og flaumrænum merkjum frá umhverfinu með hjálp rofa og skynjara. Hvernig útganga stýrivéla og örgjörva má nota til að stýra beint afllitlum hlutum eða stýra óbeint aflþungum hlutum með aðstoð hálfleiðara eða segulliða. Hvernig hanna á til tölvustýrða vél. Hvernig smíða á tölvustýrða vél. Hvernig á að velja búnað og stýriaðferðir sem henta verkefninu. Þá er lögð áhersla á að nemendur fái innsýn í forritanlega örgjörva og smátölvur og hvernig hægt er að forrita þá og nota t.d. í skynjararásir ýmis konar.
    TNTÆ2GA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • örgjörva og iðntölvuforritun
    • mótorum AC og DC
    • loftstrokkum og loftventlum
    • frágangi raf- og loftlagna
    • hönnun og smíði á forritanlegri vél
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • geta breytt, bilanagreint og smíðað einföld tæki út frá raf- og vélbúnaði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Smíða einfaldan raf- og vélbúnað
    • Búatil forrit fyrir raf- og vélbúnað
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.