Í áfanganum er fjallað um hálfleiðara, sérstaklega helstu gerðir af díóðum (tvistum), virkni þeirra og notkunarmöguleika. Farið er í hvernig nota má díóður í afriðun og kenndar nokkrar leiðir til að umbreyta AC í DC. Einnig er farið í grunnvirkni transistors og hvernig hann er forspenntur og farið í DC- reikninga transistors. Gert er ráð fyrir að nemandinn læri einnig á helstu mælitæki svo sem fjölsviðsmæli og sveiflusjá auk þess að nota hermiforrit við mælingar á rásum.
RAMV1JS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
teiknitáknum díóða og Bjt transistora
virkni díóða og Bjt transistora
helstu gerðum afriðla og virkni þeirra
notkun íhluta, s.s. díóða , Bjt transistora og afriðla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna einfaldar rásir með díóðum og transistorum.
reikna út DC spennu á mismunandi afriðlum.
teikna einfaldar rafeindarásir.
nota helstu mælitæki sem notuð eru í rafeindatækni
nota hermiforrit til mælinga á rafeindarásum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna einfaldar rafeindarásir með díóðum og transistorum og gera mælingar á þeim
framkvæma mælingar til að ganga úr skugga um hvort íhlutir eru í lagi eða ekki
Geta skilað af sér skýrslu um mælingar á rásum.
Geta framkvæmt mælingar á díóður til að ganga úr skugga um hvort íhlutir eru í lagi eða ekki.
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.