Áfanginn er framhald af RTMV2DT05 og er hér haldið áfram að fjalla um BJT transistora. Einnig er farið í aðra hálfleiðaraíhluti svo sem díak triak og týristor og virkni þeirra og notkun skoðuð.
Nemendur kynnast einnig FET - transistorum og aðgerðamögnurum í þessum áfanga, helstu
reikningum og notkunarmöguleikum þeirra. Nemendur gera dc og ac mælingar bæði með
mælitækjum og hermiforriti.
RTMV2DT05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig hægt er að nota BJT transistora sem magnara og geta reiknað út helstu stærðir í þeim og framkvæmt mælingar.
hvernig Diak, Triak og Tyristor virka, tákn og helstu notkunarmöguleika.
táknum og DC-reikningum varðandi FET transistora.
tákni, helstu virkni og notkunarmöguleikum aðgerðarmagnara
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma alla helstu reikninga varðandi BJT transistora bæði AC og DC.
framkvæma DC-reikninga í rásum með FET-transistorum.
framkvæma mælingar á rásum með hinum ýmsu hálfleiðaraíhlutum.
reikna mögnun í aðgerðamagnararásum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja eftir teikningu allar helstu gerðir magnara með BJT-transistorum og framkvæma á þeim reikninga og mælingar bæði hvað varðar AC-og DC.
tengja eftir teikningu magnara með FET-transistorum og gera á honum DC-reikninga og mælingar.
nýta sér hermiforrit við gerð mælinga og setja niðurstöður mælinga fram í skýrslu.
geta tengt og framkvæmt mælingar á magnararás með aðgerðarmagnara.
geta tengt eftir teikningu og framkvæmt mælingar á rásum með öðrum hálfleiðaraíhlutum svo sem diak, triak og týristor.
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.