Markmið afreksíþróttasviðsins er gera nemendur líkamlega, félagslega og hugarfarslega tilbúin til að takast á við það álag sem fylgir því að stefna að því vera í fremstu röð í sinni íþrótt. Nemendur tileinki sér afrekshugarfar og leikni í því hvernig skal hátta daglegum venjum til þess að bæta hegðun sína og sjálfstraust sem mun skila sér í bættri frammistöðu í hverri íþróttagrein.
Áfanginn er byggir fyrst og frenst á æfingum hjá íþróttafélagi í viðkomandi íþróttagreingrein.
Stefnt er að því að fara í vettvangs- og hópeflisferð tengda náminu.
Æfingar hjá íþróttafélagi eru tvisvar í viku í íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar, undir handleiðslu þjálfara hverrar íþróttagreinar.
Ríkar kröfur eru gerðar til nemenda um góða ástundun og námsárangur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunntækniatriðum í viðkomandi íþróttagrein
grunnatriðum þess að setja sér markmið og hvernig hægt sé að búa þau til skref fyrir skref
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma einföld tæknileg atriði í grundvallarhreyfingum í viðkomandi íþróttagrein
ástunda góða og rétta líkamsbeitingu við þjálfun styrks og afls.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja sér árangursrík markmið í íþróttum og daglegu lífi
nemendur vinna stöðugt í að bæta hæfni sína í íþróttagrein sinni
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.