Nemendur kynna sér bókmenntir 20. og 21. aldar og lesa eina skáldsögu er tengist tímabilinu. Þeir læra að tengja texta við bókmenntastefnur og setja í samhengi við ritunartíma og samtíma. Í áfanganum er lögð áhersla á ritgerðarsmíð og heimildavinnu nemenda.
10 einingar ÍSAN á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu bókmenntastefnum tímabilsins
helstu skáldverkum tímabilsins og höfundum þeirra
íslenskum hugtökum er notuð eru við greiningu bókmenntatexta
reglum um uppsetningu ritgerða og vísun í heimildir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina bókmenntatexta frá tímabilinu
nota hjálparforrit og efni af neti við textagreiningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig í ræðu og riti um innihald bókmennta tímabilsins
átta sig á atriðum í íslensku samfélagi sem tengjast bókmenntum tímabilsins
rökstyðja skoðun sína á bókmenntaverki sem viðkomandi hefur kynnt sér
skrifa bókmenntaritgerð
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Verkefni nemenda, jafnt munnleg sem skrifleg, eru metin til einkunnar ásamt prófum sem lögð eru fyrir reglulega.