Lotubundnir eiginleikar, rafefnafræði og kjarnaefnafræði
EFNA3RL05
26
efnafræði
lotubundnir eiginleikar, rafefnafræði og kjarnaefnafræði
for inspection
3
5
Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: lotukerfið og lotubundnir eiginleikar, málmar og málmleysingjar, eiginleikar hreinna efna og lausna, rafefnafræði, kjarnaefnafræði. Uppbygging verklegrar æfingar frá grunni.
EFNA3JL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lotukerfinu og lotubundnum eiginleikum frumefnanna
eiginleikum hreinna efna og lausna
tengslum raforku og efnafræði
kjarnahvörfum og hvernig þau eru ólík venjulegum efnahvörfum
uppbyggingu verklegrar æfingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rata um lotukerfið og geta sagt til um og útskýrt eiginleika efna eftir stöðu þeirra í lotukerfinu
geta metið hegðun efna eftir því hvernig þau eru samsett
nota afoxunarspennutöflur til að finna út hvort líklegt sé að efnahvarf verði
reikna út orku sem hægt er að fá út úr efnahvarfi út frá íspennu rafhlöðu
sjá út möguleg kjarnahvörf út frá upplýsingum um kjarna og setja fram líkleg kjarnahvörf
vinna verklega æfingu frá grunni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
aðlaga eigin námstækni að nýju námsumhverfi
nýta þekkingu úr efnafræði til að taka ákvarðanir, mynda sér skoðanir og taka þátt í umræðum sem byggja á þekkingu í efnafræði