Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1708591916.05

    Útskrift og hvað svo?
    NÁSS3ÁM02
    1
    Náms- og starfsfræðsla
    Náms- og starfsfræðsla, markmiðsetning, áhugasvið
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    Í áfanganum er unnið að því að nemendur séu vel í stakk búnir til að marka sér framtíð og bera ábyrgð á þeirri leið sem þeir kjósa eftir útskrift. Kenndar eru leiðir til að efla sjálfsþekkingu og að taka ákvarðanir á yfirvegaðan hátt. Áhersla er lögð á að nemendur séu meðvitaðir um þá óþrjótandi möguleika sem í boði eru í framhaldsnámi hérlendis og erlendis og þekki leiðir til að afla upplýsinga á þessu sviði.
    NÁSS1NN03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • kenningu John Hollands um áhugasvið
    • leiðum til að efla styrkleika og vinna með veikar hliðar
    • gerð náms- og starfsferilsskráa
    • framboði á framhaldsnámi hérlendis og erlendis og leiðum til að afla upplýsinga um nám og störf
    • mikilvægi þess að hafa áhrif og geta beitt sér í samfélaginu
    • eigin áhugasviði og hvert stefnir að loknu framhaldsskólanámi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna upplýsingar um nám og störf og átta sig á kröfum sem gerðar eru til einstaklinga í mismunandi námi og störfum
    • skoða ólík störf og starfsumhverfið sem þeim tengist og afla sér upplýsinga um réttindi og skyldur á vinnumarkaði
    • koma skoðunum sínum á framfæri, taka afstöðu og beita sér fyrir ákveðið málefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • til að þróa náms- og starfsferil sinn á uppbyggilegan hátt
    • nýta styrkleika sína sem best
    • greina málefni sem bæta þarf í samfélaginu
    • vera ábyrgur í afstöðu sinni til samfélagslegra málefna
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.