Meginefnisþættir áfangans eru erfðafræði mannsins og líftækni. Farið verður yfir Mendelska erfðafræði og skilgreiningu líftækninnar. Áhersla á sameindaerfðafræði; litninga og gen; afritun, umritun og þýðingu erfðaefnis; stökkbreytingar og genatjáningu; erfðafræði örvera; grunnatriði erfða- og líftækni, í tengslum við plöntur og dýr. Álitamál innan erfða- og líftækni tekin fyrir, m.a. um erfðabreytingu og klónun lífvera.
LÍFF2GL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökum Mendelskrar erfðafræði
erfðafræði manna og annarra tvílitna lífvera
byggingu DNA og litninga, afritun og próteinmyndun
stökkbreytingum á erfðaefni og tengslum við þróun
aðferðum innan erfða- og líftækninnar
líftækni plantna og dýra
álitamálum erfðafræði
lesa erfðafræðilegar upplýsingar mismunandi miðla í máli og myndum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rekja einfaldar erfðir
ákvarða líkur á erfðum tengdra og ótengdra eiginleika
tengja saman basaröð í DNA, basaröð í RNA og amínósýruröð próteina
lesa erfðafræðilegar upplýsingar mismunandi miðla í máli og myndum
tjá sig um erfðafræðileg málefni á skýran hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta upplýsingar um arfmynstur
leggja mat á upplýsingar sem tengjast erfðafræðilegum viðfangsefnum á gagnrýninn hátt
taka þátt í umræðum um erfðafræðileg málefni
rökræða siðfræðileg álitamál innan erfða- og líftækni
taka rökstudda afstöðu í álitamálum innan erfða- og líftækni
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.