Nemendur læra að kenna eldri borgurum að hagnýta upplýsingatækni sér til gagns í daglegu lífi. Skoðaðar eru kennsluaðferðir sem hægt er að hagnýta til að eldri borgari geti tileinkað sér hugbúnað mismunandi tækja s.s. farsíma, spjaldtölvu og tölvu. Farið yfir hvers konar hugbúnaður nýtist eldri borgurum og til hvers.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig eldra fólk lærir að hagnýta hugbúnað
hvernig hægt er að byggja upp öryggi við notkun tækninnar
hvernig styðja má eldri borgara til að auka lífsgæði sín með notkun tækninnar
hvernig má útskýra upplýsingatækninotkun ungmenna fyrir eldri borgurum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita viðeigandi aðferðum við kennslu á hugbúnað
vera í samskiptum við eldri borgara um tækni
útskýra tilgang og markmið með mismunandi hugbúnaði
miðla eigin reynslu og þekkingu á upplýsingatækni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
kenna eldri borgurum á tækni
finna verkfæri sem nýtast eldri borgurum í daglegu lífi
skilja hvaða upplýsingatækni gagnast eldri borgurum
átta sig á kynslóðamun í notkun upplýsingatækni
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.