Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1712844332.13

    Kaupmannahöfn, mannlíf og menning
    DANS2DM05
    41
    danska
    Dönsk menning og samfélag
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Kaupmannahöfn, höfuðborg Danmerkur er aðalviðfangsefni áfangans. Fjallað er um menningu borgarinnar, sögu hennar og tengsl Íslands og Danmerkur fyrr og nú. Dagleg samskipti á dönsku eru æfð og nemendur afla sér upplýsinga á dönsku og íslensku í gegnum ýmsa netmiðla og lesefna sem tengjast efni áfangans. Nemendur undirbúa fjögurra daga ferð til Kaupmannahafnar. Þangað er farið og vinna nemendur verkefni í tengslum við ferðina sem og eftir heimkomu. Þekktustu staðir borgarinnar og söguslóðir Íslendinga eru heimsóttir. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og að nemendur taki ábyrgð á því að skipuleggja vinnu sína og læri að nýta sér þau hjálpartæki sem í boði eru t.d. orðabækur og netmiðla.
    DANS2LH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - Mannlífi og menningu í Kaupmannahöfn
    • - Viðhorfum, gildum og almennum kurteisisvenjum í landinu
    • - Samskipi menntunar milli Íslands og Kaupmannahafnar
    • - Helstu Íslendingaslóðum í Kaupamannahöfn
    • - Orðaforða í samræmi við hæfni og leiknimarkmið áfangans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - Afla sér hagnýtra upplýsinga og taka þátt í samræðum
    • - Skilja talað mál í algengum raunverulegum aðstæðum
    • - Beita tungumálinu skýrt og skiljanlega
    • - Nota upplýsingatækni og önnur hjálpargögn við upplýsingaöflun, undirbúningsvinnu og samantekt
    • - Vinna úr og samþætta upplýsingar samkvæmt þeim venjum sem gilda um heimildavinnu og miðla þeim til annarra á áhugaverðan hátt
    • - Beita tungumálinu skýrt og skiljanlega út frá aðstæðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - Taka þátt í almennum samræðum um fjölbreytt málefni
    • - Geta fært rök fyrir máli sínu og brugðist við óvæntum spurningum
    • - Geta tjáð sig skýrt og skiljanlega með rökstuðningi
    • - Fjalla um sérhæfð efni með sérhæfðum orðaforða þar sem við á
    • - Vera fær um að fjalla almennt um menningu og mannlíf Danmerkur
    Leiðsagnarmat, öll verkefni gilda til einkunnar. Einnig er tekið mið af þátttöku og virkni nemenda. Í lok annar kynna nemendur lokaverkefni sitt.