Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1718355211.97

    Undirbúningur fyrir ökunám
    ÖKUS1SA05
    2
    Ökunám
    Undirbúningur fyrir ökunám
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að búa nemendur undir ökunám og bóklega hluta ökuprófs. Farið er yfir námsefni sem lagt er til grundvallar almennu ökuprófi með áherslu á lög, umferðarmerki, götumerkingar, umferðarmenningu og hegðun í umferðinni, reglur og viðhorf til umferðar með áherslu á jákvæð viðhorf til tillitssemi og ábyrgðar í umferðinni. Nemendur fá að spreyta sig á verkefnum tengt efninu, bæði á netinu og á verkefnablöðum. Þá verða farnar vettvangsferðir út í umferðina þar sem fræðilegi hlutinn er tengdur við raunverulegar aðstæður í umferðinni. Unnið er markvisst að undirbúningi nemenda fyrir almennt ökupróf. Reynt verður að hafa æfingar við áhuga, hæfi og getu hvers og eins. Notaðar verða æfingar til að festa umferðarmerkin í minni, horft á myndbönd úr umferðinni og annað sem gæti nýst nemendum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirbúningi sem þarf til að fá ökuréttindi
    • réttindum sínum og skyldum varðandi ökunám
    • mikilvægi þess að kunna umferðarreglur
    • skilja þá ábyrgð sem felst í því að keyra bíl
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna sjálfstætt
    • þekkja réttindi sín og skyldur varðandi ökunám
    • nota netið til að auðvelda sér ökunámið
    • þekkja helstu umferðareglur og merki
    • spyrja ef hann skilur ekki
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leysa verkefni sjálfstætt
    • geta nýtt sér viðeigandi stuðningstæki s.s. tölvur og gagnvirkt efni
    • þekkja helstu umferðareglur og umferðamerki
    • átta sig á ábyrgðinni sem felst í því að stjórna ökutæki
    • nota netið til að auðvelda sér ökunámið
    • undirbúa bóklegt ökunámmeta þá aðstoð sem hann mögulega þarf og hefur rétt á