Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1740577860.41

    Frá hugmynd til styrks
    FRUM2HS05
    8
    frumkvöðlafræði
    hugmyndavinna og styrkumsóknir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn fjallar um hvernig á að sækja um styrki fyrir verkefni, bæði innlend og á alþjóðavísu. Nemendur læra að greina styrkveitendur, þróa umsóknir og setja upp raunhæfa fjárhagsáætlun. Lögð er áhersla á tengslamyndun, heimsóknir til styrkveitenda, viðtöl við styrkþega og greiningu á kostum og göllum styrkumsókna. Einnig er skoðað hvernig nýta má gervigreind og upplýsingatækni í ferlinu, t.d. fyrir textaskrif, kynningarefni, myndvinnslu og vefsíðuhönnun. Áfanginn er ætlaður framhaldsskólanemendum sem ekki hafa neina fyrri reynslu af umsóknarskrifum.
    FRUM1TR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mismunandi styrktarsjóðum og kröfum þeirra (Erasmus+, Nordplus, EEA, fyrirtækjasjóðir o.fl.)
    • Ferlinu frá hugmynd til samþykktar umsóknar
    • Helstu þáttum styrkumsókna, svo sem verkefnalýsingu, fjárhagsáætlun og sjálfbærni
    • Hvernig tengslamyndun og samstarf hefur áhrif á styrkveitingar
    • SVÓT-greiningu á verkefnum
    • Hvernig gervigreind og upplýsingatækni geta aðstoðað í umsóknarskrifum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina styrkleika og veikleika í eigin verkefnum
    • Skrifa skýrar og sannfærandi styrkumsóknir
    • Útbúa raunhæfa fjárhagsáætlun
    • Byggja upp og nýta tengslanet í styrkumsóknum
    • Nota gervigreind og upplýsingatækni fyrir textaskrif, kynningarefni og myndvinnslu
    • Hanna einföld kynningarskjöl eða vefsíður fyrir umsóknarverkefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Undirbúa og senda inn fullgilda styrkumsókn
    • Greina hvaða styrktarsjóðir henta mismunandi verkefnum
    • Taka virkan þátt í umræðu um fjármögnun samfélagsverkefna
    • Meta og rýna í styrkleika og veikleika eigin verkefnahugmynda
    • Tengjast styrkveitendum og styrkþegum til að læra af raunverulegum dæmum
    • Nýta tækni til að bæta gæði umsóknarskrifa og kynningarefnis
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og mikilvægt er að nemendur stundi námið reglulega.