Viðfangsefni áfangans eru hópíþróttagreinar eins og knattspyrna, körfuknattleikur, handknattleikur og blak ásamt fleiri greinum. Í áfanganum er áherslan m.a. á sögu íþróttagreinanna, grunnreglur íþróttagreinanna og þjálfun íþróttagreinanna fyrir byrjendur upp að 12 ára aldri. Farið er í mikilvæg atriði við þjálfun barna í íþróttagreinunum, s.s. mikilvægi leikja, hvernig á að byggja upp tímaseðil og hvernig hægt er að flétta líkamlegri
þjálfun inn í leiki og æfingar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu íþróttagreinanna, eins og upphafi þeirra og þróun
grunnreglum íþróttagreinanna
mikilvægustu atriðunum við þjálfun barna í íþróttagreinunum
hvaða atriði skipta máli við þjálfun hópaíþróttagreina, eins og taka tillit til allra iðkenda, gefa öllum tækifæri og að æfingar taki mið af þörfum og getu einstaklinga og hópsins í heild
nýtingu leikja og æfinga fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir í íþróttagreinunum
uppsetningu tímaseðla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp skipulagðan tímaseðil í íþróttagreinunum út frá getu iðkenda og markmiðum tímans
nýta leiki til að þjálfa grunnatriði íþróttagreinanna og flétta líkamlegri þjálfun inn í leiki og æfingar
meta hvaða tækni- og leikfræðiatriði í íþróttagreinunum henta hverjum aldurshóp
útfæra mismunandi krefjandi æfingar til að æfa viðfangsefni íþróttagreinanna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta og dæma leiki í íþróttagreinunum hjá yngstu aldurshópunum
fylgjast með æfingu íþróttafélaga í íþróttagreinunum hjá yngsta aldurshópnum og meta æfingavalið og uppsetninguna á æfingunni
horfa á leiki í íþróttagreinunum og skilið grunnatriði leiksins
taka þátt í umræðum um íþróttagreinarnar á faglegan og uppbyggilegan hátt
Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.