Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1743514776.75

    Heilsufræði - Fjölbreytt heilsurækt
    HEIF1FR02
    2
    heilsufræði
    Fjölbreytt Heilsurækt
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Áfanginn er bæði verklegur og bóklegur, með markvissri fræðslu um líkams- og heilsurækt. Nemendur fá tækifæri til að prófa fjölbreyttar aðferðir í þjálfun. Áhersla er lögð á að nemendur finni hreyfingu sem hentar þeirra getu og áhuga. Einnig er veitt markviss fræðsla um forvarnagildi líkams- og heilsuræktar og hvatning til heilbrigðari lífshátta.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
    • að reglubundin líkamsrækt er grunnur að góðri líkamshreysti
    • mikilvægi upphitunar, úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
    • leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt í daglegum athöfnum
    • æfingum sem bæta líkamsstöðu og hvernig beita á líkamanum rétt
    • fjölbreytilegum aðferðum til heilsuræktar
    • mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta
    • stunda æfingar og hreyfingu sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
    • stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
    • beita samvinnu sem stuðlar að tillitssemi og hvatningu
    • nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru sem metið er með virkni, hugarfari og mætingu nemandans
    • gera sér grein fyrir gildi samvinnu í leik og keppni
    • sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf
    • glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
    • nýta sér möguleika í að flétta reglubundna hreyfingu í daglegt líf og starf
    • nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
    Ástundun, verkefni og próf.