Nemendur öðlast þekkingu á ýmsu sem tengist breskum húmor, s.s., einkennum, bakgrunni, menningu og tilvísunum í sögu (sögulega atburði). Tungumál þeirra verka sem skoðuð eru er krufið til mergjar. Nemendur kynnast einnig mismunandi tegundum húmors, ákveðnum höfundum og verkum þeirra. Áhersla er lögð á sjálfstæða vinnu og verkefni og að nemendur leiti sér sjálfir fanga. Nemendur vinna að fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að þjálfa framsögn, samræður, samvinnu, hlustun, gagnrýna hugsun, málsskilning og ritfærni.
10 einingar í ensku á 2. þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu einkennum bresks húmors
nýjum orðaforða sem tekinn var fyrir í áfanganum
menningarumhverfi þess efnis sem skoðað er
gagnrýnu áhorfi, tengingu og tilvísunum þess efnis sem er til umfjöllunar
samspili menningar og tungumáls sem kristallast í þeim verkum sem skoðuð eru
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hugsa á skapandi og gagnrýninn hátt
taka afstöðu til hugmynda og rökstyðja mál sitt
setja mál sitt fram skilmerkilega í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt og skipuleggja verkefni
skoða verk og geta tjáð sig munnlega og skriflega um efni þeirra með viðeigandi orðaforða
taka þátt í skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu
nýta og beita nýjum orðaforða
skrifa bæði skapandi og formlegan texta og beita viðeigandi rithefðum
gera greinarmun á formlegri og óformlegri málnotkun í ræðu og riti
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.