Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1759753340.0

    Kvikmyndir frá ýmsum löndum
    KVIK1KV05
    4
    kvikmyndir og tungumál
    kvikmyndir frá ýmsum löndum
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum eru skoðaðar kvikmyndir á mismunandi tungumálum út frá fyrirfram gefnu þema. Skoðað er hvernig menningarmunur birtist í kvikmyndum frá ólíkum menningarsvæðum og er athyglinni m.a. beint að staðalmyndum, klisjum og tabúum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • menningarmun ýmissa landa út frá tilteknu þema í kvikmyndum
    • mismunandi túlkunarleiðum þjóða til að koma á framfæri ákveðnum boðskap í kvikmyndum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • túlka og gagnrýna kvikmyndir út frá tilteknu þema
    • hlusta á og öðlast frekari skilning á ólíkum tungumálum með tiltekið þema í forgrunni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bera saman hvernig tiltekið þema birtist í kvikmyndum frá ýmsum löndum
    • átta sig á ólíku tungutaki ýmissa þjóða þar sem tiltekið þema er haft til hliðsjónar
    • lesa í ólíka menningu þjóða hvað varðar tiltekið viðfangsefni
    Í áfanganum er viðhaft símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega og skili öllum verkefnum.