Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1769443084.77

    Lestur, tungumál og samfélag - skapandi miðlun fyrir börn
    ÍSLE1HÍ02
    163
    íslenska
    Hagnýt íslenska
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í þessum áfanga vinna nemendur að því að skapa aðgengilegt og vandað lesefni fyrir börn, með sérstaka áherslu á mikilvægi lesturs fyrir málþroska og þátttöku allra barna, óháð tungumálabakgrunni. Áfanginn vekur nemendur til meðvitundar um mikilvægi þess að búa vel að íslenskukennslu fyrir nýja íbúa samfélagsins, án þess að útiloka íslensk börn, og stuðlar að auknum skilningi á hlutverki tungumáls í námi, samskiptum og samfélagslegri þátttöku. Nemendur vinna með myndskreyttar sögur og texta sem eru aðgengilegir á erlendu tungumáli og endursegja eða þýða efnið yfir á íslensku. Lögð er áhersla á skýrt, einfalt og lifandi mál sem hentar börnum. Nemendur aðlaga texta og myndefni í stafrænu umhverfi og leiklesa sögurnar inn þannig að úr verður myndband sem líkist lesinni barnabók. Með því skapast efni sem foreldrar og börn geta notið saman, jafnvel þótt ekki allir foreldrar hafi tök á að lesa fyrir börnin sín á íslensku. Áfanginn er samfélagstengdur og byggir á raunverulegri miðlun þar sem nemendur fá tækifæri til að deila afrakstri sínum með börnum, til dæmis með heimsókn leikskólabarna sem hlusta á sögurnar og prófa efnið. Nemendur upplifa að verk þeirra hafi tilgang og gildi utan skólastofunnar og taki þátt í að efla læsi, aðgengi og inngildingu í samfélaginu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi lesturs fyrir málþroska barna og tengslum lesturs við framtíðarlæsi.
    • helstu áskorunum sem börn og fjölskyldur með fjölbreyttan tungumálabakgrunn geta staðið frammi fyrir
    • grunnatriðum í aðlögun og endursögn texta fyrir yngri börn
    • mikilvægi aðgengis að menningar- og námsgögnum fyrir alla
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þýða eða endurvinna stuttan texta yfir á íslensku með tilliti til markhóps
    • nota stafræna miðla til að setja saman myndrænt og hljóðrænt efni
    • leiklesa texta á skýrri og barnvænni íslensku
    • vinna í hóp að skapandi verkefni með sameiginlegt markmið
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta tekið ábyrgð á eigin vinnu og lagt sitt af mörkum til samfélagslegs verkefnis
    • geta sýnt skilning, virðingu og samfélagsvitund í verkefnum sem snúa að börnum og fjölbreyttum hópum
    • meta gildi þess að skapa efni sem stuðlar að inngildingu, læsi og jákvæðri upplifun barna
    • meta ígrundað eigið framlag og upplifun af því að „gera góðan hlut“
    Miðannaráfangi