Áfanginn felst í heimsókn nemenda úr Menntaskólanum á Tröllaskaga til Gautaborgar í Svíþjóð þar sem áherslan er á myndlist og menningu í Svíþjóð. Nemendur fá tækifæri til að kynnast ólíkum myndlistarstílum, hefðum, söfnum, galleríum, myndlistarskólum og vinnustofum listamanna í Gautaborg. Með því að skoða myndlist, söfn og myndlistarskóla í öðrum löndum auka nemendur víðsýni og auka þekkingu sína á ólíkum stefnum og stílum í myndlist. Áhersla er lögð á að nemendur auki orðaforða sinn á sviði menningar og lista og geti tjáð skoðanir sínar og rökstutt.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum viðkomandi listgreinar
listum í menningarlegu og sögulegu samhengi
mismunandi nálgun listamanna við listsköpun
helstu listamönnum Gautaborgar og helstu listastefnum
miðlun listsköpunar með því að tjá sig um hana
því að þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka virkan þátt í umræðum við jafningja í öðrum löndum
skoða listaverk og fjalla um megininntak þeirra á skapandi hátt
efla skilning sinn á listrænni vinnu, upplifa, skynja og túlka það sem nemandi sér
taka þátt í samræðum um listgreinarnar, færa rök fyrir máli sínu og virða skoðanir annarra
skoða hvar list er í umhverfinu og fjalla um það
skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar og bregðast við viðmælendum og vinna saman í hópum að framsetningu á því sem lært var í heimsókninni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá skoðanir sínar og tilfinningar um list, listamenn og listviðburði
horfa á myndlist með opnum hug og efla með sér félagslega ábyrgð, virðingu og vilja til samvinnu á alþjóðavettvangi
vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk listsköpunar
þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum