Json

Námskrá

Titill: Smáskipanám - skipstjórn 12-15m viðbót (Staðfestingarnúmer 493) 21-493-2-140
Lýsing: Námskrá þessi tiltekur þær kröfur sem gerðar eru til smáskipanáms, skipstjórnarhluta, varðandi viðbótarnám (ofan á nám til skipstjórnar á fiskiskipum og öðrum skipum, 12 metrar að skráningalengd og styttri, í strandsiglingum) til aukinna skipstjórnarréttinda á fiskiskipum og öðrum skipum, 15 metrar og styttri, í strandsiglingum (sbr. 24. gr. rg. nr. 944/2020) samkvæmt lögum nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa (5. og 6. gr.). Réttindi fást að loknum viðeigandi siglingatíma og öryggisfræðslunámi. Framhaldsskólar skv. lögum um framhaldsskóla geta boðið upp á smáskipanám. Jafnframt getur Samgöngustofa veitt fræðslustofnunum, sem ekki teljast framhaldsskólar, heimild til að bjóða upp á smáskipanám. Þessir aðilar skulu hafa yfir að ráða kennsluaðstöðu, tækjabúnaði til að bjóða upp á slíkt nám og kennara og leiðbeinendur, sem hafa fullnægjandi fagmenntun og heimildir til þess að gegna stöðu kennara eða leiðbeinanda, að fenginni staðfestingu Samgöngustofu áður en nám hefst. Samgöngustofa hefur eftirlit með að smáskipanám uppfylli kröfur námskrár. Námskröfur til smáskipanáms eru tilgreindar í þessari námskrá sem ráðuneyti menntamála hefur tekið saman að höfðu samráði við ráðuneyti samgöngumála og Samgöngustofu. Námið má meta til eininga í framhaldsskóla og skólastjórnendur eru ábyrgir á mati skóla á námi frá öðrum fræðslustofnunum.

Grunnupplýsingar

Inntökuskilyrði: Nemandi skal vera handhafi skírteinis til skipstjórnarstarfa á skipum sem eru styttri en 12 metrar að skráningarlengd í strandsiglingum skv. reglugerð nr. 175/2008, eða hafa lokið viðurkenndu smáskipaskipstjórnarnámi sem í boði var fyrir 1. september 2020 (sbr. rg. nr. 944/2020). Leiki vafi á að smáskipaskipstjórnarnám sé viðurkennt sker Samgöngustofa úr um.
Skipulag: Viðurkenndur fræðsluaðili ber ábyrgð á framkvæmd námsins. Námið er bóklegt og verklegt og felur í sér starfsþjálfun. Samgöngustofa getur sett kröfur um skipulag náms ef fræðslustofnun telst ekki fullnægja öllum skilyrðum um kennsluaðstöðu, tækjabúnað eða öðrum skilyrðum á námslokum.
Námsmat: Með námsmati að loknu námi er markmiðið að leggja raunhæft mat á þekkingu, leikni og hæfni nemenda eins og krafa er um. Útfærsla námsmats og framkvæmd skal vera í takt við þá hæfni sem nemendur eiga að hafa öðlast og geta sýnt fram á að námi loknu. Einkunn í einstökum námsþáttum skal vera á bilinu 1-10 með einum aukastaf. Að jafnaði skal miða við að 5,0 sé lágmarkseinkunn til að standast einstaka námsþætti námsins, þó er viðmiðið 6,0 í nokkrum þeirra og er það tilgreint í þeim. Lokaeinkunn smáskipanámsins (meðaleinkunn allra matsþátta) skal vera í heilum tölum og þarf að lágmarki vera 7 til að fræðslustofnun geti staðfest að námi sé lokið. Sú fræðslustofnun sem gefur út staðfestingu um að námi sé lokið skal geta lagt fram fullnægjandi gögn til staðfestingar á þekkingu og hæfni nemanda á grundvelli viðeigandi námsmats.
Starfsnám: Til þess að fá útgefið atvinnuskírteini til starfa á skipum skal nemandi eftir atvikum (a) hafa lokið siglingatíma og/eða viðurkenndri starfsþjálfun sem nánar er kveðið á um í gildandi lögum og reglugerðum um það efni, og (b) hafa lokið öryggisfræðslunámi smáskipa hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða öðrum viðurkenndum þjálfunaraðila og viðurkenndu námskeiði í skyndihjálp.
Markhópar
  • einstaklingar með stutta skólagöngu að baki
  • einstaklingar á vinnumarkaði með stutta formlega skólagöngu að baki
  • einstaklingar sem vilja efla starfshæfni sína
  • einstaklingar sem búa við skerta möguleika til náms eða atvinnuþátttöku
Hæfni-, þekkingar- og leikniviðmið
  • taka sjálfstæðar ákvarðanir er varða siglingu skips, mannskap og veiðarfæri
  • hafa með höndum örugga stjórn á skipi af þessari stærð, á siglingu skipsins, á skipulagi og vali á siglingaleið og á siglingatækjabúnaði skipsins
  • skynja rétt hættur sem haft geta áhrif á stöðugleika skipa af þessari stærð og meta áhrif ýmissa þátta á stöðguleika
  • meta rétt veðurfarslegar aðstæður, umhverfisaðstæður og þær hættur sem skapast geta við strandsiglingar
  • fá útgefið skírteini sem fjarskiptamaður með takmörkuð fjarskiptaréttindi (ROC)
  • sinna þeim verkum sem tengjast skráningu skipsins, reglubundnu eftirliti með því, tryggingamálum og tjónum sem upp kunna að koma
  • fylgja eftir réttindum skipverja og árétta skyldur þeirra, m.a. um lögskráningu
  • sinna skyldum sínum varðandi varnir gegn mengun sjávar og bregðast við mengunaróhöppum
  • vinna eftir fiskveiðistjórnunarkerfinu, velja viðeigandi veiðarfæri og að eiga í samskiptum við viðeigandi stjórnvöld
  • sinna viðhaldi og umhirðu á vél- og rafbúnaði skipa af þessari stærð, gera þjónustusamninga um viðhald og undirbúa skip fyrir reglubundar aðalskoðanir


Nemendastundir Fjöldi klukkustunda til að ljúka námskrá

140  klst.

Kjarni Námsþættir í námskrá


Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Vinnustundir
Credits Percentage
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir námsþættir sem hægt er að velja/meta í námskránni

Nei, frjálst val er ekki leyft

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Jafnrétti:
Námshæfni:
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
Menntun til sjálfbærni:
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
Heilbrigði:
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
Lýðræði og mannréttindi:
Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar: