Námskrá
Titill: | Smáskipanám - vélstjórn 15-24m viðbót (<750kW) (Staðfestingarnúmer 495) 21-495-2-120 |
Lýsing: | Námskrá þessi tiltekur þær kröfur sem gerðar eru til smáskipanáms, vélavarðarhluta, varðandi það viðbótarnám (ofan á nám í smáskipavélavörslu á skipum 15 metrar og styttri í strandsiglingum og með vélarafl 750 kW eða minna) sem þarf til að starfa sem vélavörður á skipum með vélarafl 750 kW og minna (óháð skráningarlengd) og sem yfirvélstjóri á skipum styttri en 24 metra að skráningarlengd og með vélarafl 750 kW og minna (sbr. 12. gr. rg. nr. 944/2020) samkvæmt lögum nr. 30/2007 um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa (5. og 6. gr.). Réttindi fást að loknum viðeigandi siglingatíma og öryggisfræðslunámi. Framhaldsskólar skv. lögum um framhaldsskóla geta boðið upp á smáskipanám. Jafnframt getur Samgöngustofa veitt fræðslustofnunum, sem ekki teljast framhaldsskólar, heimild til að bjóða upp á smáskipanám. Þessir aðilar skulu hafa yfir að ráða kennsluaðstöðu, tækjabúnaði til að bjóða upp á slíkt nám og kennara og leiðbeinendur, sem hafa fullnægjandi fagmenntun og heimildir til þess að gegna stöðu kennara eða leiðbeinanda, að fenginni staðfestingu Samgöngustofu áður en nám hefst. Samgöngustofa hefur eftirlit með að smáskipanám uppfylli kröfur námskrár. Námskröfur til smáskipanáms eru tilgreindar í þessari námskrá sem ráðuneyti menntamála hefur tekið saman að höfðu samráði við ráðuneyti samgöngumála og Samgöngustofu. Námið má meta til eininga í framhaldsskóla og skólastjórnendur eru ábyrgir á mati skóla á námi frá öðrum fræðslustofnunum. |
Grunnupplýsingar
Inntökuskilyrði: | Nemandi skal vera handhafi skírteinis til vélstjórnarstarfa á skipum sem eru styttri en 12 metrar að skráningarlengd í strandsiglingum skv. reglugerð nr. 175/2008, eða styttri en 15 metrar skv. rg. nr. 944/2020, eða hafa lokið viðurkenndu smáskipavélavarðarnámi sem í boði var fyrir 1. september 2020 (sbr. rg. nr. 944/2020). Leiki vafi á að smáskipavélavarðarnám sé viðurkennt sker Samgöngustofa úr um. |
Skipulag: | Viðurkenndur fræðsluaðili ber ábyrgð á framkvæmd námsins. Námið er bóklegt og verklegt og felur í sér starfsþjálfun. Samgöngustofa getur sett kröfur um skipulag náms ef fræðslustofnun telst ekki fullnægja öllum skilyrðum um kennsluaðstöðu, tækjabúnað eða öðrum skilyrðum á námslokum. |
Námsmat: | Með námsmati að loknu námi er markmiðið að leggja raunhæft mat á þekkingu, leikni og hæfni nemenda eins og krafa er um. Útfærsla námsmats og framkvæmd skal vera í takt við þá hæfni sem nemendur eiga að hafa öðlast og geta sýnt fram á að námi loknu. Einkunn í einstökum námsþáttum skal vera á bilinu 1-10 með einum aukastaf. Að jafnaði skal miða við að 5,0 sé lágmarkseinkunn til að standast einstaka námsþætti námsins, þó er viðmiðið 6,0 í nokkrum þeirra og er það tilgreint í þeim. Lokaeinkunn smáskipanámsins (meðaleinkunn allra matsþátta) skal vera í heilum tölum og þarf að lágmarki vera 7 til að fræðslustofnun geti staðfest að námi sé lokið. Sú fræðslustofnun sem gefur út staðfestingu um að námi sé lokið skal geta lagt fram fullnægjandi gögn til staðfestingar á þekkingu og hæfni nemanda á grundvelli viðeigandi námsmats. |
Starfsnám: | Til þess að fá útgefið atvinnuskírteini til starfa á skipum skal nemandi eftir atvikum (a) hafa lokið siglingatíma og/eða viðurkenndri starfsþjálfun sem nánar er kveðið á um í gildandi lögum og reglugerðum um það efni, og (b) hafa lokið öryggisfræðslunámi smáskipa hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða öðrum viðurkenndum þjálfunaraðila og viðurkenndu námskeiði í skyndihjálp. |
Markhópar |
|
Hæfni-, þekkingar- og leikniviðmið |
|
Nemendastundir Fjöldi klukkustunda til að ljúka námskrá
120 klst. |
Kjarni Námsþættir í námskrá
Credits Percentage
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir námsþættir sem hægt er að velja/meta í námskránni
Nei, frjálst val er ekki leyft